Næsta námskeið hefst 11.júní 2024

Krummar BMX hafa verið með 10 vikna námskeið fyrir börn á aldrinum 6-16 ára þar sem farið er í grunnatriði Keppnis BMX hjólreiða.

Æfingar fara fram á pumpubrautinni við Lundaból (Asparlundur, Garðabær).

Hópnum verður skipt upp eftir aldri og/eða tæknilegri færni.

Þjálfari er Helgi Berg Friðþjófsson

ATH! Aðeins 12 pláss í boði.

Námskeiðsgjaldið er 35.000 kr, en skráning fer fram í gegnum Sportabler.

Nauðsynlegur öryggisbúnaður: full-face hjálmur, hjólahanskar og lang-erma/skálma fatnaður.

Hægt verður leigja alvöru keppnis BMX hjól af klúbbnum fyrir æfingar, kostnaður við það er 10.000 kr fyrir tímabilið.